Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   sun 16. maí 2021 13:44
Victor Pálsson
Mourinho gæti leitað til Newcastle í sumar
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho mun taka við stjórnartaumunum hjá Roma eftir tímabilið og reynir fyrir sér á Ítalíu í annað sinn.

Mourinho var rekinn frá Tottenham fyrr á þessu tímabili en var áður rekinn frá bæði Chelsea og Manchester United.

Samkvæmt Corriere della Sera þá er Mourinho að horfa til Newcastle og vill leikmann liðsins í sumarglugganum.

Leikmaðurinn sem um ræðir er Allan Saint-Maximin sem hefur staðið sig með prýði á vængnum á St. James' Park.

Saint-Maximin á enn fimm ár eftir af samningi sínum við Newcastle og myndi alls ekki fara ódýrt frá félaginu.

Þessi 24 ára gamli leikmaður kostaði 16,5 milljónir punda er Newcastle keypti hann frá Nice árið 2019.

Athugasemdir
banner
banner
banner