16.06.19 - 23:17
Ívan Guðjón Baldursson
Farke: Ekki hræddir við Liverpool

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Norwich City vann Championship deildina í fyrra og er því komið aftur upp í ensku úrvalsdeildina.
Liðið spilaði skemmtilegan sóknarbolta og skoraði 93 mörk í 46 deildarleikjum. Farke segir að leikstíll liðsins muni ekki breytast þó andstæðingarnir í haust séu á hærra gæðastigi.
„Við vitum að þetta er líklega erfiðasti opnunarleikur sem við gátum fengið," sagði Farke.
„Við erum ekki hræddir við Liverpool frekar en aðra andstæðinga. Við lögðum ótrúlega mikið á okkur fyrir þetta tækifæri til að spila við bestu lið landsins.
„Við viljum launa stuðningsmönnum okkar með góðum fótbolta og jákvæðum úrslitum."