Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 16. júlí 2021 09:54
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Giroud mættur í læknisskoðun á Ítalíu
Mynd: EPA
Olivier Giroud er mættur til Ítalíu og er á leið í læknisskoðun áður en félagaskipti hans til AC Milan verða staðfest.

Milan er búið að ná samkomulagi við Chelsea um að greiða tvær milljónir evra fyrir Frakkann.

Giroud er 34 ára gamall og kom einungis við sögu í sautján úrvalsdeildarleikjum á síðasta tímabili.

Hann var síðast í byrjunarliði Chelsea 21. mars. Búast má við því að Giroud skrifi undir tveggja ára samning við Milan.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner