Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 16. júlí 2021 11:07
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Hrósa Stjörnunni fyrir framgönguna eftir leik
Úr fyrri leik Stjörnunnar og Bohemians.
Úr fyrri leik Stjörnunnar og Bohemians.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stjarnan féll úr leik í gær í 1. umferð forkeppni Sambandsdeildarinnar.

Stjarnan mætti Bohemians frá Írlandi í tveggja leikja einvígi. Eftir jafntefli á heimavelli, þá var niðurstaðan 3-0 tap á Írlandi í gær.

Georgie Kelly reyndist Stjörnumönnum erfiður í kvöld. Hann kom Bohemians yfir þegar rúmar tíu mínútur voru eftir af fyrri hálfleik. Eftir tæpar tíu mínútur í seinni hálfleik skoraði hann aftur og staðan mjög erfið fyrir Garðbæinga.

Liam Burt gerði algjörlega út um einvígið þegar stundarfjórðungur var eftir af venjulegum leiktíma.

Stjarnan er því úr leik, en Garðbæingar fengu hrós frá írska félaginu fyrir framgöngu sína eftir leik. Það hvernig Stjarnan gekk frá klefa sínum eftir leik var mjög vel gert.

Bohemians vekur athygli á þessu á Twitter og birtir mynd með. Þeir þakka líka einnig Stjörnunni fyrir framkomuna á Íslandi.

Hér að neðan má sjá myndina.


Athugasemdir
banner
banner
banner