Fotbolti.net
16.07.26 - 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Akureyrarslagurinn fer fram á nýja vellinum - Miðasala hefst í dag

Akureyrarslagurinn fer fram á nýja vellinum - Miðasala hefst í dag
Canon

Mynd: Sævar Geir Sigurjónsson

Leikur KA og Þórs í 16. umferð Bestu deildarinnar fer fram á nýjum heimavelli KA þann 27. júlí.
Mikið undir hjá KA að nýi völlurinn verði klár fyrir grannaslaginn - „Held að það verði raunin"
TENGT EFNI

Mikið undir hjá KA að nýi völlurinn verði klár fyrir grannaslaginn - „Held að það verði raunin"

Sævar Pétursson, framkvæmdastjóri KA, sagði í viðtali við Fótbolta.net á dögunum að framkvæmdir væru í fullum gangi á KA svæðinu og vonaðist til að leikurinn gæti farið fram á nýjum velli.

KA staðfesti í gær að það mun ganga upp.

Miðasala hefst í KA-heimilinu í dag og fer fram milli klukkan 16 og 18.

„Athugið að selt er í númeruð sæti og þurfa allir að sækja sér útprentaðan miða. Ekki er selt í gegnum stubb," segir í tilkynningu frá KA.

Liðin mættust á VÍS vellinum, heimavelli Þórs, 2. maí þar sem Hallgrímur Mar Steingrímsson skoraði sigurmark KA úr vítaspyrnu undir lokin. KA er í 10. sæti með 13 stig, fimm stigum á undan botnliði Þórs.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.