Fotbolti.net
16.07.26 - 15:52
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Kjarninn

Byrjunarlið Stjörnunnar í Færeyjum: Jón Þór gerir eina breytingu

Þorri Mar kemur inn í liðið.

Þorri Mar kemur inn í liðið.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Klukkan 17:00 hefst leikur Stjörnunnar og Víkings Götu. Leikurinn er liður í einvígi liðanna í 1. umferð forkeppninnar í Sambandsdeildinni.

Um er að ræða seinni leik liðanna og fer hann fram í Klaksvík í Færeyjum. Stjarnan leiðir einvígið með tveimur mörkum eftir 3-1 sigur á Samsungvellinum fyrir viku síðan. Emil Atlason skoraði öll mörk Stjörnunnar í þeim leik.
Emil Atla: Í hliðstæðum heimi væri ég kannski að spila hérna
TENGT EFNI

Emil Atla: Í hliðstæðum heimi væri ég kannski að spila hérna

Lestu um leikinn: Víkingur Götu 0 - 0 Stjarnan
Jón Þór Hauksson, þjálfari Stjörnunnar, gerir eina breytingu frá fyrri leiknum. Heiðar Ægisson fór meiddur af velli í fyrri leiknum og inn í liðið kom Þorri Mar Þórisson. Þorri Mar byrjar leikinn í dag og Heiðar er ekki í hóp. Það vekur athygli að Sindri Þór Ingimarsson er ekki í hópnum í dag en hann kom inn á sem varamaður í fyrri leiknum.

Leikurinn er sýndur beint á Livey. Smelltu hér til að fara í útsendinguna - Hörður Ágústsson lýsir.

Byrjunarlið Víkingur Götu

Barður Á Reynatrøð, Sølvi Vatnhamar, Arnbjørn Svensson, Arnór Brandsson, Jakup Johansen, Aron Ellingsgaard, Jørgen Nielsen, Ingi Jonhardsson, Aron Benjaminsen, Jósef Ólavsson, Ingi Arngrímsson

Byrjunarlið Stjarnan

Árni Snær Ólafsson, Gustav Kjeldsen, Þorri Mar Þórisson, Guðmundur Kristjánsson, Örvar Eggertsson, Jóhann Árni Gunnarsson, Birnir Snær Ingason, Guðmundur Baldvin Nökkvason, Emil Atlason (fyrirliði), Benedikt V. Warén, Örvar Logi Örvarsson

Emil er á sínum stað.

Emil er á sínum stað.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.