Arnór Ingvi: Svekktur með sjálfan mig og verð það í kvöld líka


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Karakter að koma til baka, lélegur fyrri hálfleikur, betri seinni hálfleikur og fullt af færum á báða bóga, hefði getað dottið báðu megin. Fínn leikur af okkar hálfu heilt yfir," sagði Arnór Ingvi Traustason leikmaður KR eftir 3-3 jafntefli gegn Breiðablik í kvöld.
Eins og Arnór segir var nóg af færum í þessum leik og KR-ingar voru í raun bara svekktir að hafa ekki skorað fleiri.
„Miðað við stöðurnar okkar sem við erum að fá. Ég fæ fullt af stöðum í fyrri hálfleik og nýt þær illa, og gríðarlega svekktur með sjálfan mig þar. Svo er bara fullt af stöðum sem við erum að fá sem við þurfum að nýta betur, þar af ég með talinn," sagði Arnór.
Arnór átti fullt af skotum í þessum leik en boltinn vildi ekki í markið fyrir hann.
„Stundum er það þannig, þetta var bara mjög lélegt. Ég er bara mjög svekktur með sjálfan mig og verð það örugglega í kvöld líka. Svona er þetta stundum, þetta er partur af þessu líka," sagði Arnór
Arnór fer af velli seint í leiknum og virtist eitthvað meiddur en það virðist ekki vera neitt alvarlegt.
„Já það er allaf eitthvað, ég er með smá illt, en við förum yfir þetta," sagði Arnór.
Víkingar unnu í dag og þar af leiðandi færist KR fjær þeim í stigum. Arnór trúir þó enn að þeir geti ellt þá uppi.
„Við tökum þetta leik fyrir leik, höfum gaman af því sem við erum að gera. Svo setjumst við niður eftir hvern leikum og skoðum stöðuna, við erum ekki að fara breyta neinu þar," sagði Arnór.
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.
