Höskuldur: Þetta var rokk og ról fram og til baka


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég held þetta var mikil skemmtun að horfa á, þetta var líka skemmtilegur leikur að spila," sagði Höskuldur Gunnlaugsson fyrirliði Breiðablik eftir 3-3 jafntefli gegn KR í kvöld.
„Þetta var rokk og ról fram og til baka. Maður er með blöndu af súrri tilfinningu að hafa ekki unnið þetta, en á sama tíma eftir að þeir jöfnuðu þá var meðbyrinn með þeim. Mér fannst við samt ná að vinna okkur aftur úr því og eiginlega vera bara klaufar. Dóri síðan varði líka bara vel heilt yfir meðal annars frá mér. Maður þarf að sjá þetta aftur, en skemmtilegur leikur, skemmtilegur að horfa á og skemmtilegur að spila. Við hefðum alveg viljað klára þetta með þrem stigum, en bara já," sagði Höskuldur.
Höskuldur brenndi af vítaspyrnu í fyrri hálfleik þegar Halldór Snær varði frá honum. Það svíður enn meira eftir leik í ljósi þess að úrslitin urðu jafntefli.
„Það gerir það, hann las þetta helvíti vel hjá mér. Mér fannst ég ekkert missa taktinn og hvað þá kollegar mínir. Við bökkum það upp með því að skora tvö góð mörk eftir það. Við erum heilt yfir með gott frumkvæði og tögl og völd á þessum leik heild yfir. Þeir eru með briljant einstklingsgæði og mikla orku, svo eru þeir bara komnir í þá stig miðað við í fyrra að þeir þefa það betur upp og refsa. Þannig maður er alveg svekktur, en bara stoltur af frammistöðunni og gaman að spila þennan leik," sagði Höskuldur.
Blikar hafa verið í sérstakri stöðu lengi vel þar sem þeir hafa verið pikkfastir í 4. sætinu og langt í lið fyrir neðan og ofan. Svo eru þeir með bikar úrslitaleik í September og vangaveltur hafa komið upp hvort menn séu bara að bíða eftir þeim leik.
„Við erum varir um þessa umræðu, en ég held við höfum sýnt það í dag að við ætlum ekkert að láta það hafa áhrif á okkur. Þá meina ég ekki umræðuna, heldur þessa stöðu, þar sem ég skil alveg hvaðan þetta 'take' kemur. Það er hins vegar bara stórhættulegt og mjög heimskulegt að falla í þann pitt, þar sem það er nóg af leikjum eftir, og það er ekkert öruggt í þessari deild. Svo viltu bara vera, burt séð frá þessum bikar leik, passa við séum 'on it', í góðu standi og í ljósi bikarúrslitaleiksins, þá vilt þú koma með svona frammistöður á bakinu eins og í dag. Þar sem þú finnur fyrir liðsfélaganum og finnur fyrir orkustiginu og finnur fyrir gæðunum í þessu liði. Þannig já við erum var við þessa umræðu enn frekar erum við var við þennan pitt sem hægt er að detta í, en við þurfum að fara ekki í þennan pitt eins og sást í dag," sagði Höskuldur.
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.
