16.08.26 - 20:20
Ívan Guðjón Baldursson
Mættur í læknisskoðun hjá Newcastle

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Bosníski landsliðsmaðurinn Amar Dedic er lentur í Newcastle þar sem hann gengst undir læknisskoðun á morgun og skrifar svo undir samning.

TENGT EFNI
Bosnískur landsliðsmaður á leið til Newcastle
Dedic er 23 ára hægri bakvörður sem gerir fimm ára samning við Newcastle. Úrvalsdeildarfélagið borgar 30 milljónir punda til að kaupa hann, sem samsvara 35 milljónum evra.
Hann verður því til taks í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar um næstu helgi, þegar Newcastle tekur á móti Liverpool í spennandi slag.
Dedic verður sjötti leikmaðurinn til að ganga til liðs við Newcastle í sumar og er félagið enn í leit að fleiri leikmönnum eftir að hafa selt þrjá lykilmenn í sumar.