Fotbolti.net
16.08.26 - 21:05
Haraldur Örn Haraldsson

Óskar Hrafn: Aleinir út á rúmsjó ekki með björgunarvesti eða björgunarbát

Auglýsing
Óskar Hrafn: Aleinir út á rúmsjó ekki með björgunarvesti eða björgunarbát
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Þetta var skemmtilegur leikur, þar sem mér fannst við þurfa nýta betur allar stöðurnar sem við fengum á síðasta þriðjung. Ég geri ekki athugasemdir við niðurstöðuna, hún var að öllum líkindum sanngjörn," sagði Óskar Hrafn Þorvaldsson þjálfari KR eftir 3-3 jafntefli gegn Breiðablik í kvöld.

Lestu um leikinn: KR 3 - 3 Breiðablik

Óskar hefur oft á tíðum ekki verið að svekkja sig of mikið á mörkum sem KR fær á sig en í kvöld fannst honum mörkin full ódýr.

„Auðvitað er maður svekktur að hafa ekki skorað fleri, en þau voru aðeins of ódýr, mörkin í fyrri hálfleik. Við þurfum að passa, og höfum verið fínir í því, að dekka menn inn í teig, og ekki missa einbeitinguna. Það var stefið í dag, í fyrri hálfleik, í þessum mörkum sem þeir skora. Við þurfum bara að passa að það sé í lagi, en við áttum bara að skora fleiri mörk, það er alveg ljóst," sagði Óskar.

Breiðablik átti frábæran leik og byrjuðu leikinn með tvo framherja. Óskar segir að það hafi ekki komið honum neitt sérstaklega á óvart.

„Ekki þegar maður skoðaði byrjunarliðið, þeir stilla upp tveimur senterum í fyrsta skiptið í sumar, tveimur stórum senterum. Enda kannski í fyrsta skiptið sem þeir hafa átt tækifæri til þess. Við sáum það nú bara þegar skýrslan kom, langir boltar, vinna annan boltann og fara hratt út á kant og reyna að tvöfalda. Nei það var ekkert sem kom okkur á óvart. Leikstíllinn sem við spilum hentar Blikum alveg ágætlega, við stöndum hátt og skiljum menn eftir í einn á einn stöðu. Bakverðirnir okkar eru ekki öfundsverðir þeir eru aleinir út á rúmsjó, ekki með björgunarvesti eða björgunarbát og þurfa bara að græja sig einir oft á tíðum. Það er krefjandi verkefni, og Blikarnir eru með frábært lið, frábæra einstaklinga og þá færði á þig þessar stöður. Við þurfum bara að klára betur það sem gerist inn í teignum hjá okkur, sem við höfum verið fínir í. Það vantaði aðeins upp á það í fyrri hálfleik í dag," sagði Óskar.

Þar sem Víkingar unnu í dag, þá færast KR-ingar fleiri stigum frá þeim í töflunni. Óskar segir að Víkingar séu einfaldlega sér í deild.

„Ég hef nú sagt það áður og get alveg endurtekið það. Ég lít svo á það í dag að munurinn er slíkur að Víkingar eru að keppa í sinni eigin deild. Við þurfum bara að hugsa um okkur, eins leiðinlega og það hljómar. Jafnvel að ég komi bara með allar klisjurnar, taka einn leik í einu og hugsa um okkur sjálfa, en það er raunverulega það sem við þurfum að gera. Svo gerist eitthvað hjá þeim, og kannski tapa þeir stigum, kannski misstíga þeir sig á leiðinni, en við þurfum bara að einbeita okkur að KA leiknum, og ekki einbeita okkur of mikið af því sem er að gerast fyrir ofan eða neðan. Ég held að það sé lang mikilvægast, annars getur maður bara tapað sér í einhverju sem skiptir engu máli og við höfum enga stjórn á. Við höfum bara stjórn á því hvernig við mætum til leiks, við höfum stjórn á því hvernig við leggjum okkur fram, en hvað Víkingur gerir höfum við enga, því miður það væri gaman að hafa stjórn á því, en því miður höfum við enga stjórn á því," sagði Óskar.

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.