Fotbolti.net
16.08.26 - 21:00
Ívan Guðjón Baldursson

Arteta vill stækka leikmannahópa og varamannabekki

Arteta vill stækka leikmannahópa og varamannabekki
Canon

Mynd: EPA

Mikel Arteta þjálfari Arsenal er ekki ánægður með þær takmarkanir sem reglur ensku úrvalsdeildarinnar setja á félagsliðin.
Arteta: Einhverjir leikmenn þurfa líklegast að fara
TENGT EFNI

Arteta: Einhverjir leikmenn þurfa líklegast að fara

Hann hefur biðlað til stjórnar úrvalsdeildarinnar um að breyta reglum varðandi hámarksfjölda leikmanna sem geta verið skráðir til leiks í deildinni, en aðeins fengið neikvæð svör.

Arteta svaraði spurningum eftir 3-0 sigur gegn Manchester City í leiknum um Samfélagsskjöldinn í dag, en Gabriel Martinelli, Ethan Nwaneri og Gabriel Jesus voru utan hóps vegna takmarkana. Þá voru Jurriën Timber og William Saliba utan hóps vegna meiðsla.

Félagslið mega skrá 25 leikmenn sem eru komnir yfir 21 árs aldur til leiks í deildarkeppni og má þjálfarinn aðeins velja 20 leikmenn í hóp á leikdegi.

„Það er mjög sorglegt að geta ekki notað þessa leikmenn. Ég hef verið að berjast fyrir því að stækka leikmannahópa og varamannabekki útaf því að það eru margir leikmenn sem eiga skilið að fá tækifæri sem þeir geta ekki fengið útaf reglugerðinni."

Arteta hrósaði ungstirnunum Ethan Nwaneri og Marli Salmon eftir sigurinn gegn City og sagðist harma að hafa ekki getað haft þá með í leikmannahópinum í dag. Martinelli var heldur ekki með eftir að Arsenal samþykkti kauptilboð í hann frá Galatasaray fyrir skömmu, en brasilíski kantmaðurinn hafnaði hugmyndinni.

„Það eru mikilvægir leikmenn samningsbundnir félaginu sem við munum ekki geta skráð til leiks útaf reglugerðinni. Við viljum ekki selja þessa leikmenn."
Arteta vill stækka leikmannahópa og varamannabekki
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.