Fotbolti.net
16.08.26 - 20:40
Ívan Guðjón Baldursson

Maresca: Þurfum nýja leikmenn sem fyrst

Maresca: Þurfum nýja leikmenn sem fyrst
Canon

Mynd: EPA

Enzo Maresca, nýr þjálfari Manchester City, svaraði spurningum fréttamanna eftir 3-0 tap gegn Englandsmeisturum Arsenal í leiknum um enska Samfélagsskjöldinn í dag.
Samfélagsskjöldurinn: Arsenal pakkaði Man City saman
TENGT EFNI

Samfélagsskjöldurinn: Arsenal pakkaði Man City saman

Man City var án Rodri í byrjunarliðinu þar sem þessi besti leikmaður heimsmeistaramótsins er á leið til Spánarmeistara Barcelona. City saknaði Rodri á miðjunni og vonast Maresca til að fá nýja leikmenn inn til félagsins sem fyrst.

„Við munum kaupa leikmenn áður en glugginn lokar," sagði Maresca, sem var spurður út í miðjumanninn efnilega Ayyoub Bouaddi sem er á leið til City úr röðum Lille.

„Hann er ennþá leikmaður Lille, en það er augljóst að við þurfum nýja leikmenn. Við þurfum að fá nýja menn inn sem fyrst útaf því að úrvalsdeildin hefst eftir eina viku. Það er mikilvægt að þeir byrji að æfa með hópnum sem fyrst til að læra á leikstílinn og flýta fyrir aðlögunarferlinu.

„Rodri er ótrúlegur fótboltamaður sem getur spilað fyrir hvaða fótboltalið sem er. Öll félög í heimi myndu vilja hafa hann innan sinna raða og auðvitað munum við sakna hans, en við þurfum að hugsa í lausnum."


Maresca tjáði sig einnig um Jack Grealish sem kom inn af bekknum og sagðist vera ánægður með hans framlag.
Maresca: Þurfum nýja leikmenn sem fyrst
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.