Ólafur Ingi: Fannst við vera betra liðið


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég er bara mjög stoltur og ánægður með frammistöðuna, svekktur með úrslitin," sagði Ólafur Ingi Skúlason þjálfari Breiðablik eftir 3-3 jafntefli gegn KR í kvöld.
„Mér fannst við eiga að vinna þennan leik, við missum tvær mínútur í seinni hálfleik sem verða þess valdandi að þeir koma sér aftur inn í hann. Við hefðum átt að vera búnir að skora fjórða markið fyrir það. Þannig að þetta er svona súrsætt," sagði Ólafur.
Yfirleitt eru þrjú mörk nóg til að vinna leiki en Ólafur var mjög svekktur með að skora ekki fleiri.
„Þegar maður horfir á færanýtinguna, við fáum víti í fyrri hálfleik sem við hefðum getað nýtt. Við fáum mörg mjög góð færi í síðari hálfleik, þá bara gerist það ef maður klárar ekki öll sín færi. Halldór átti frábæran leik í markinu, svo er ég pirraður sérstaklega yfir öðru markinu hjá þeim, eftir horn, hefðum átt að gera betur í því, og viðbrögðin eftir það, að hleypa þeim í þriðja markið er ekki gott. Eins og ég sagði, það er hægt að pota í allsskonar en heilt yfir fannst mér við bara vera betra liðið," sagði Ólafur.
Stuðningsmenn Breiðablik hafa látið heyra í sér oft á tíðum í sumar þar sem þeir hafa verið óánægðir með spilamennsku liðsins. Frammistaðan í dag, ætti að vera fínt svar við því.
„Ég held að allir sem eru búnir að fylgjast með okkur í sumar viti það alveg að þegar við erum upp á okkar besta, þá erum við meðal þeirra bestu á landinu. Það hefur verið of mikið drop á mikið, ég nenni ekki að vera með einhverjar afsakanir. Auðvitað þurfum við bara að gera betur og stigasöfnunin verður að vera betri. Þetta er búið að vera erfitt meiðslalega, það er eitthvað sem verður að líta í líka að algjörir lykilmenn hjá okkur sem eru bara búnir að spila mjög fáar mínútur og hafa ekki getað hjálpað okkur. Auðvitað ber leikur liðsins vott af því, það er klárt. Eins og ég sagði áðan, þá þurfum við bara að halda áfram og eins og sást á liðinu í dag þá var frábært framlag hjá okkur, og stoltið var til staðar að berjast fyrir félagið," sagði Ólafur.
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.
