Fotbolti.net
16.08.26 - 22:10
Ívan Guðjón Baldursson

Ronaldo: Þetta er líklega síðasta árið mitt

Ronaldo: Þetta er líklega síðasta árið mitt
Canon

Mynd: EPA

Portúgalska goðsögnin Cristiano Ronaldo gæti lagt takkaskóna á hilluna eftir tímabilið í Sádi-Arabíu. Þetta sagði hann í viðtali við Vogue eftir að hafa gift sig á dögunum.
Nýgiftur Ronaldo mætti með nýtt útlit eftir sumarfríið
TENGT EFNI

Nýgiftur Ronaldo mætti með nýtt útlit eftir sumarfríið

Ronaldo tilkynnti það fyrir heimsmeistaramótið í sumar að þetta yrði hans síðasta HM á ferlinum og nú gæti hann gengið skrefinu lengra og hætt í fótbolta eftir tímabilið.

„Þetta er líklega síðasta árið mitt í fótbolta og ég vil skilja stórkostlega arfleifð eftir mig," sagði Ronaldo.

Ronaldo er aðeins með eitt ár eftir af samningi sínum við Al-Nassr, sem hann hjálpaði að vinna langþráðan deildartitil á síðustu leiktíð. Ronaldo hefur verið afar iðinn við markaskorun þrátt fyrir hækkandi aldur, en hann er 41 árs gamall og búinn að skora 976 mörk á ferli sínum sem atvinnumaður. Hann er því aðeins 24 mörkum frá því að verða sá fyrsti í sögunni til að skora 1000.

Hann varð í sumar fyrstur í sögunni til að skora á sex heimsmeistaramótum en á sínum ferli hefur hann unnið aragrúa af titlum og einstaklingsverðlaunum. Það er ekki af ástæðulausu sem Ronaldo er almennt talinn einn af allra bestu fótboltamönnum sögunnar.
Ronaldo: Þetta er líklega síðasta árið mitt
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.