Fotbolti.net
16.09.16 - 21:29
Jóhann Ingi Hafþórsson

Berglind Björg: Geggjað að vera partur af þessu liði

Auglýsing
Berglind Björg í leiknum í kvöld.

Berglind Björg í leiknum í kvöld.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Berglind Björg Þorvaldsdóttir spilaði allan leikinn í framlínu Íslands er liðið vann Slóveníu, 4-0 í kvöld.

Hún fékk tækifærið í fjarveru Hörpu Þorsteinsdóttur og var hún ánægð, bæði með spilamennsku liðsins og svo eigin frammistöðu.
„Fyrstu 30 mínúturnar gékk vel, við vorum að spila og skapa eitthvað en við misstum þetta aðeins niður í lokin í fyrri hálfleik en mér fannst við vera að yfirspila þær í seinni hálfelik.\"

„Ég reyni ekki að hugsa um það en það er alltaf bakvið að það væri sætt að skora fyrsta markið, það kemur þegar það kemur.\"

Berglind segir það vera æðislegt að fá að vera partur af landsliðshópnum.

„Þetta er fáranlega gaman og að fá að vera partur af þessu liði er geggjað,\" sagði Berglind.

Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.