Fotbolti.net
16.09.18 - 16:46
Kristófer Jónsson

Pálmi Rafn: Verðum bara að hugsa um okkar leiki

Auglýsing
Pálmi var maður leiksins í dag

Pálmi var maður leiksins í dag

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Pálmi Rafn Pálmason, leikmaður KR, var maður leiksins í 3-1 sigri liðsins á botnliði Keflavík. Pálmi skoraði tvö mörk og lagði upp eitt.

<i>„Ég er ánægður með þrjú stig og góða spilamennsku á stórum köflum. Við áttum erfitt með þá í fyrri hálfleik. En eftir sem að leið á leikinn náðum við betri tökum.\"</i> sagði Pálmi eftir leik.

Eins og fyrr segir var Pálmi frábær í þessum leik og skoraði tvö mörk. Hann fékk svo gott færi til að fullkomna þrennuna undir lok leiks en skot hans fór þá rétt framhjá markinu.
„Þetta var bara lélegt hjá mér og það hefði verið gott að fá fjórða markið fyrir okkur. Ég verð bara að drullast til að klára þetta í næsta leik.\" sagði Pálmi um atvikið.

KR-ingar sitja í fjórða sæti deildarinnar og eru í bullandi Evrópubaráttu við FH sem að mistókst að vinna Víking R. á sama tíma.

„Við verðum bara að hugsa um okkar leiki og ef við klárum þá erum við komnir í Evrópu sem að við ætlum okkur. En það eru ennþá tveir leikir og allt getur gerst.\" sagði Pálmi að lokum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.