Fotbolti.net
12.07.26 - 20:37
Ívan Guðjón Baldursson

Orri Hrafn: Held mér hafi aldrei liðið betur

Auglýsing
Orri Hrafn: Held mér hafi aldrei liðið betur
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Orri Hrafn Kjartansson var í byrjunarliðinu og skoraði sitt fyrsta mark fyrir KR í stórsigri gegn ÍBV í Bestu deildinni fyrr í kvöld.
Lestu um leikinn: KR 5 - 2 ÍBV
Orri Hrafn skoraði fjórða markið í 5-2 sigri og var kátur að leikslokum.

„Það er rosalega gott að ná sigrinum hérna á heimavelli eftir tvo brösulega leiki. Við vorum ekki alveg nógu klárir í byrjun en við vitum að þó við lendum undir þá getum við alltaf snúið leiknum við mjög fljótt," sagði Orri.

„Það var ákveðinn léttir að skora fyrsta markið. Það er alltaf gaman að skora og hvað þá hérna heima fyrir framan alla stuðningsmennina.

„Ég held að mér hafi aldrei liðið betur. Ég er ótrúlega sáttur og það gengur vel. Þetta er frábær hópur og ég ætla að halda áfram að leggja mitt af mörkum. Að sjálfsögðu er stefnan ennþá sett á titilinn en við reynum að taka bara einn leik í einu. Við tókum smá hökt en ef við byggjum á þessum sigri þá erum við í góðum málum held ég."


KR er í öðru sæti Bestu deildarinnar, með 32 stig eftir 15 umferðir - átta stigum á eftir toppliði Víkings R. sem á leik til góða.
Orri Hrafn: Held mér hafi aldrei liðið betur
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.