Siggi Höskulds: Versta sem ég hef séð síðan ég kom í Þór


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sigurður Heiðar Höskuldsson var þungur á brún í leikslok eftir 6-1 tap gegn Fram í Bestu deild karla fyrr í kvöld á Lambhagavellinum.
„Mér fannst fyrri hálfleikurinn að mörgu leyti virka ágætlega, óheppnir í þessu marki sem við gefum þeim. Smá orkuleysi og við töluðum um það í hálfleik að við þyrftum að skrúfa upp tempoið á okkur, það gerðum við svo sannarlega ekki því seinni hálfleikurinn er það versta sem ég hef séð síðan ég kom í Þór.''
„Við klukkuðum ekki einusinni Framarana, mér fannst það hugarfarslegs eðlis, ekki afþví við erum slakari en þeir líkamlega, þessi seinni hálfleikur var algjört afhroð.''
Nánar er rætt við Sigga í spilaranum hér að ofan en þar fer hann nánar í saumana á leiknum og leikmannaglugganum sem er að opna.


