Sara Björk Gunnarsdóttir landsliðsfyrirliði var í byrjunarliði Juventus sem tók á móti Roma í fyrsta leik 3. umferðar Serie A deildar kvenna í kvöld.
Eina mark leiksins kom snemma í síðari hálfleik en það skoraði Valentina Cernoia fyrir Juventus. Juventus spilaði einum manni fleiri síðustu 25 mínúturnar en náði þó ekki að bæta við fleiri mörkum.
Liðið fór upp fyrir Roma í töflunni og er með 7 stig á toppi deildarinnar eftir þrjár umferðir. Fiorentina, Roma og Sampdoria eru stigi á eftir en Fiorentina og Sampdoria eiga leik til góða.
Glódís Perla Viggósdóttir var í byrjunarlið Bayern Munchen sem gerði markalaust jafntefli gegn Frankfurt á útivelli í fyrstu umferð deildarinnar í kvöld.
Aron Sigurðarson lék allan leikinn fyrir Horsens í 1-0 sigri liðsins á Nordsjælland í dösnku efstu deildinni í kvöld. Horsens er í 5. sæti með 14 stig eftir 10 leiki en Nordsjælland er á toppnum.
Daníel Leó Grétarsson lék allan leikinn fyrir SLask Wroclaw er liðið gerði 1-1 jafntefli gegn Piast Gliwice í Póllandi. Slask er í 9. sæti með 13 stig eftir 10 umferðir.