Alexis Saelemaekers, leikmaður AC Milan á Ítalíu, framlengdi í gær samning sinn við félagið til 2026.
Saelemaekers, sem er 22 ára gamall, var lánaður frá Anderlecht til Milan í janúar á síðasta ári, en hálfu áru síðar ákvað Milan að festa kaup á honum.
Hann spilaði 32 deildarleiki á síðustu leiktíð og er búinn að festa sæti sitt í liðinu.
Belgíski bakvörðurinn átti þrjú ár eftir af samningnum hjá Milan en félagið hefur nú framlengt þann samning um tvö ár eða til 2026.
Hann er þegar kominn með tvær stoðsendingar í sjö deildarleikjum á þessu tímabili en Milan situr í öðru sæti deildarinnar með 19 stig eftir sjö leiki.
Athugasemdir