Fotbolti.net
16.10.26 - 14:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Bellingham að skrifa undir nýjan langtíma samning

Bellingham að skrifa undir nýjan langtíma samning
Canon

Mynd: EPA

Jude Bellingham er samkvæmt heimildum AS á Spáni búinn að ná samkomulagi um nýjan fimm ára samning við Real Madrid.

Enski landsliðsmaðurinn er með samning við Real til 2029 en nýr samningur myndi gilda til 2031.

Miðjumaðurinn mun fá launahækkun en viðræður hafa verið í gangi frá því að síðasta tímabil endaði.
Bellingham hefur leikið vel undir stjórn Jose Mourinho, skorað þrjú mörk og lagt upp þrjú í átta deildarleikjum á tímabilinu.

Hann kom til Real frá Dortmund sumarið 2023 á háa upphæð sem gæti endað í 115 milljónum punda út frá öllum árangurstengdum gjöldum.

Bellingham hefur unnið Meistaradeildina og spænska meistaratitilinn sem leikmaður Real.
Bellingham að skrifa undir nýjan langtíma samning
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.