Fotbolti.net
16.10.26 - 21:08
Ívan Guðjón Baldursson

Hertha Berlin missteig sig - Þriðji sigurinn í röð hjá AB

Hertha Berlin missteig sig - Þriðji sigurinn í röð hjá AB
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Það komu nokkrir Íslendingar við sögu í leikjum dagsins víða um Evrópu þar sem landsdliðsmaðurinn Jón Dagur Þorsteinsson var á sínum stað í byrjunarliði Hertha Berlin.
Jóni Degi tókst þó hvorki að skora né leggja upp í markalausu jafntefli á útivelli gegn Holstein Kiel í næstefstu deild þýska boltans. Hertha trónir á toppi deildarinnar með 22 stig eftir 8 umferðir, en liðið var með fullt hús stiga fram að þessum janfteflisleik.

Hertha sýndi yfirburði í Kiel en tókst ekki að skora. Jón Dagur spilaði fyrstu 76 mínútur leiksins.

Í danska boltanum héldu Guðlaugur Victor Pálsson og félagar í Horsens hreinu í markalausu jafntefli á heimavelli gegn Randers FC. Horsens er um miðja efstu deild með 13 stig eftir 11 umferðir.

Í næstefstu deild varði Adam Ingi Benediktsson mark AB sem lagði HB Köge að velli með þremur mörkum gegn tveimur. Adam Ingi fékk skráð sjálfsmark á sig á lokamínútum leiksins sem kom þó ekki að sök.

AB, sem leikur undir stjórn Fannars Bergs Gunnólfssonar, vann þar með þriðja leikinn í röð og sitja nýliðarnir í fjórða sæti. AB komst upp um deild síðasta vor og er að takast frábærlega á við nýja áskorun í sterkari deild.

Daníel Ingi Jóhannesson var þá í byrjunarliði Kolding sem sigraði gegn Vendsyssel og er með 12 stig eftir 11 umferðir - þremur stigum á eftir AB.

Aarhus Fremad er með 14 stig eftir að hafa gert jafntefli við botnlið Esbjerg. Ólafur Dan Hjaltason var ónotaður varamaður í liði Aarhus.

Í þriðju efstu deild í Svíþjóð var Oskar Tor Sverrisson í byrjunarliði Trelleborg sem hafði betur gegn Lund. Bjarni Mark Antonsson kom inn af bekknum í liði Trelleborg, sem er búið að vinna deildina með 60 stig eftir 27 umferðir af 30.

Í hollenska boltanum lék Ágúst Orri Þorsteinsson fyrstu 66 mínúturnar í 4-0 tapi Excelsior gegn Heerenveen. Staðan var 2-0 þegar Ágústi, sem byrjaði á hægri kanti, var skipt af velli. Excelsior er með 11 stig eftir 9 umferðir í efstu deild.

Helgi Fróði Ingason var ekki í hóp hjá Helmond frekar en Tómas Johannesen hjá Jong AZ, varaliði AZ Alkmaar. Bæði lið leika í næstefstu deild í Hollandi.

Í kvennaboltanum var Emilía Kiær Ásgeirsdóttir í byrjunarliði RB Leipzig sem vann þægilegan þriggja marka sigur á útivelli gegn Freiburg. Liðin eru jöfn á stigum eftir innbyrðisviðureignina, með 10 stig eftir 7 umferðir.

Að lokum var Daníela Dögg Guðnadóttir í byrjunarliði Álasunds sem hafði betur gegn Roa í efstu deild í Noregi. Álasund jafnaði Brann á toppi deildarinnar með þessum sigri, Daníela og stöllur eru með 47 stig eftir 19 umferðir en Brann á leik til góða.

Holstein Kiel 0 - 0 Hertha Berlin

Horsens 0 - 0 Randers

HB Köge 2 - 3 AB

Kolding 2 - 1 Vendsyssel

Aarhus Fremad 0 - 0 Esbjerg

Lund 2 - 4 Trelleborg

Heerenveen 4 - 0 Excelsior

Helmond 0 - 2 NAC Breda

Venlo 4 - 4 Jong AZ

Freiburg 0 - 3 RB Leipzig

Aalesund 1 - 0 Roa
Hertha Berlin missteig sig - Þriðji sigurinn í röð hjá AB
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Hertha Berlin missteig sig - Þriðji sigurinn í röð hjá AB
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertha Berlin missteig sig - Þriðji sigurinn í röð hjá AB
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Hertha Berlin missteig sig - Þriðji sigurinn í röð hjá AB
Canon

Mynd: Heimasíða Álasunds

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.