16.10.26 - 23:36
Sóldís Erla
Natasha leggur skóna á hilluna eftir magnaðan feril
Auglýsing

Mynd: Grindavík/Njarðvík

Mynd: Grindavík/Njarðvík

Natasha Anasi er að leggja skóna á hilluna eftir glæsilegan feril. Natasha kom til Íslands árið 2014 eftir að hafa spilað út í Bandaríkjunum. Hún byrjaði feril sinn á Íslandi með ÍBV, síðan þá hefur hún leikið fyrir Keflavík, Val og Grindavík/Njarðvík. Natasha hefur einnig spilað með íslenska landsliðinu og fór með þeim á EM í Sviss í fyrra.
Lestu um leikinn: Grindavík/Njarðvík 2 - 1 ÍBV
Natasha var heiðruð á leiknum áðan fyrir feril sinn. Natasha gekk í raðir Grindavík/Njarðvík fyrir þetta tímabil og var fyrirliði liðsins.
„Ég var búin að ákveða fyrir tímabilið að þetta yrði örugglega mitt síðasta tímabil. Það var bara mjög spennandi hvernig allt gekk upp, við komumst í bikarúrslit og héldum okkur inn í deildinni.”
Natasha var valin í A landslið kvenna á dögunum þegar þær spiluð við Króatíu. Natasha þurfti því miður að draga sig úr hópnum vegna meiðsla.
„Ég var að vonast til að þetta yrði svona fullkominn endir fyrir ferilinn. Klára þetta verkefni og leggja svo skóna á hilluna en svona er lífið.”
Natasha var einnig með skilaboð fyrir unga iðkendur.
„Taktu hlutunum eins og þeir koma, ég held að það besta sem ég gerði var að taka hlutina skref fyrir skref. Þú ert eflaust með fullkomið plan til að ná langt en svo breytist margt á leiðinni. Þú stjórnar öllu sem þú ætlar að gera og ekki leyfa öðrum að stjórna því.”