16.10.26 - 17:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ró yfir viðræðum Moyes og Everton

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Samningur stjórans David Moyes við Everton rennur út næsta sumar og ekkert nýtt er að frétta af viðræðum um nýjan samning.
„Það var talsvert af samtölum í sumar og kannski út af því hvernig málin hafa þróast (varðandi mögulega sölu á félaginu) þá er ákveðin ró yfir viðræðunum núna, verið að reyna koma skipulagi á hlutina," sagði Moyes við Sky Sports í dag.

„Eins og ég hef sagt margoft þá er mikilvægast hjá mér að reyna þrýsta Everton áfram. Ég held mínu starfi áfram og reyni að byggja Everton upp og stýra liðinu í rétt átt. Við höfum gert nokkuð vel síðasta eina og hálfa árið. Við sjáum hvað setur," sagði Moyes um mögulegann samning.
Skotinn stýrði Everton á árunum 2002-2013 og sneri svo aftur í janúar í fyrra. Hann hefur stýrt liðinu í 69 leikjum og 26 þeirra hafa unnist. Hann var valinn þjálfari mánaðarins í febrúar í fyrra. Everton er í 5. sæti eftir sex leiki á þessu tímabili og hefur ekki tapað leik. Liðið endaði í 13. sæti á síðasta tímabili eftir lélegan endasprett og endaði einnig í 13. sæti tímabilið 2024/25.
Everton tekur á móti Chelsea í hádeginu á morgun.

Premier league - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Arsenal | 10 | +10 | 27 |
| 2 | Brighton | 10 | +19 | 22 |
| 3 | Man City | 10 | +8 | 21 |
| 4 | Liverpool | 10 | +4 | 18 |
| 5 | Chelsea | 10 | +3 | 16 |
| 6 | Everton | 10 | +2 | 16 |
| 7 | Bournemouth | 10 | +2 | 15 |
| 8 | Aston Villa | 10 | -1 | 15 |
| 9 | Brentford | 10 | +5 | 14 |
| 10 | Leeds | 10 | +2 | 14 |
| 11 | Tottenham | 10 | -1 | 12 |
| 12 | Newcastle | 10 | -3 | 12 |
| 13 | Hull City | 10 | 0 | 11 |
| 14 | Ipswich Town | 10 | -5 | 11 |
| 15 | Fulham | 10 | -2 | 10 |
| 16 | Nott. Forest | 10 | -4 | 9 |
| 17 | Coventry | 10 | -9 | 9 |
| 18 | Sunderland | 10 | -9 | 8 |
| 19 | Man Utd | 10 | -7 | 7 |
| 20 | Crystal Palace | 10 | -14 | 7 |