16.10.26 - 20:31
Ívan Guðjón Baldursson
Þýskaland: Ísak byrjaði í tapi

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Eintracht Frankfurt 1 - 0 FC Köln
1-0 Younes Ebnoutalib ('77)
1-0 Younes Ebnoutalib ('77)
Ísak Bergmann Jóhannesson var í byrjunarliði FC Köln sem heimsótti Eintracht Frankfurt í fyrsta leik helgarinnar í efstu deild þýska boltans.
Ísak lék fyrstu 68 mínúturnar og var skipt af velli eftir að hafa verið með gult spjalt á bakinu í 20 mínútur.
Staðan var enn markalaus þegar Ísaki var skipt af velli en þýski landsliðsmaðurinn Younes Ebnoutalib skoraði eina mark leiksins á 77. mínútu.
Köln var hættulegra liðið í fyrri hálfleik en átti mjög erfitt uppdráttar í síðari hálfleiknum og verðskulduðu heimamenn að lokum sigurinn.
Frankfurt er með 8 stig eftir 6 umferðir, einu stigi fyrir ofan Köln.