Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 16. nóvember 2022 15:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Denayer æfir með belgíska hópnum - Tveir tæpir
Mynd: EPA
Miðvörðurinn Jason Denayer hefur verið kallaður í æfingabúðir belgíska landsliðsins í Kúveit. Denayer er ekki einn af þeim 26 leikmönnum sem Roberto Martínez valdi í hópinn heldur er hann til taks ef upp koma meiðsli.

Denayer spilar með Shabab Al-Ahli í Sameinuðu arabísku furstadæmunum og er einn af fjórum sem er á varamannalista.

Jan Vertonghen ghefur glímt við meiðsli að undanförnu og þá er Romelu Lukaku einungis búinn að spila tvo leiki síðan í ágúst vegna meiðsla.

Martínez hefur þar til sólarhring fyrir fyrsta leik Belga, gegn Kanada 23. nóvember, til að gera breytingu á hópnum ef upp koma meiðsli.
Athugasemdir
banner
banner
banner