Innkastsbræðurnir Elvar Geir og Daníel Geir ýttu á upptöku strax eftir leik Liverpool og Man Utd. Hafa þeir félagar oft mætt keikari í þáttinn og fór Elvar mikinn í greiningu sinni á liðinu sem hann heldur með.
Annað í þættinum: Yfirburðir Liverpool, Arsenal ósannfærandi, City með aukagír, Íslendingar í veseni, Chelsea þarf ekki framherja og í þættinum að þessu sinni var hið geysivinsæla Balotelli horn.
Innkastið er gert í samvinnu við Ölver og viljum við í tilefni að heimsmeistaramótsins í pílu vekja athygli á frábærri píluaðstöðu á Ölveri.
Athugasemdir