Fotbolti.net
16.06.26 - 09:17
Elvar Geir Magnússon

Nunez skelfilega lélegur og var tekinn af velli í hálfleik

Nunez er án félags.

Nunez er án félags.

Canon

Mynd: EPA

Darwin Nunez, fyrrum leikmaður Liverpool, var tekinn af velli í hálfleik þegar Úrúgvæ gerði 1-1 jafntefli gegn Sádi-Arabíu á HM í gærkvöldi.

Sádi-Arabía leiddi í hálfleik og átti úrúgvæski sóknarmaðurinn vægast sagt slakan leik. Síðustu mánuðir hafa verið erfiðir á ferli hans og hann er án félags eftir að samningi hans við Al-Hilal í Sádi-Arabíu var rift.
HM: Markvörður Sádi-Arabíu stal senunni
TENGT EFNI

HM: Markvörður Sádi-Arabíu stal senunni

Nunez, sem hefur verið orðaður við endurkomu í ensku úrvalsdeildina, hjálpaði sjálfum sér og leitinni að nýjum vinnuveitendum ekki neitt með arfaslakri frammistöðu í gær.

Nunez kláraði aðeins þrjár sendingar og átti átta snertingar á boltann áður en þjálfarinn Marcelo Bielsa hafði séð nóg og tók hann af velli í hálfleik.

Hinn 26 ára Nunez fékk ekki gott umtal á samfélagsmiðlum þar sem talað var um að hann hafi verið nánast ósýnilegur í leiknum. Eftir að hann var tekinn af velli spilaði úrúgvæska liðið miklu betur. Liðið jafnaði með marki Maximiliano Araujo og komst nálægt því að tryggja sér sigurinn.

Ólíklegt er talið að Nunez verði aftur í byrjunarliðinu þegar Úrúgvæ leikur gegn Grænhöfðaeyjum um helgina.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Bielsa hafði séð nóg.

Bielsa hafði séð nóg.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.