Fotbolti.net
16.06.26 - 07:55
Brynjar Ingi Erluson

3. deild: Stórsigur hjá KH - Ýmir vann Árbæ

KH er komið á skrið

KH er komið á skrið

Canon

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

KH vann 5-1 stórsigur á KV í 3. deild karla í gær og hefur nú skorað 26 mörk, flest allra liða, í deildinni á þessu tímabili.
Sigfús Kjalar Árnason kom KH í forystu eftir rúman stundarfjórðung og Hafþór Bjarki Guðmundsson tvöfaldaði forystuna á 33. mínútu.

Sjálfsmark Jóns Tryggva Arasonar kom KH í 3-0 áður en Viktor Þór Lárusson bætti við fjórða markinu tveimur mínútum síðar.

Tristan Alex Tryggvason minnkaði muninn fyrir KV á 60. mínútu áður en Kristófer André Kjeld Cardoso rak smiðshöggið á góðan sigur KH.

KH er í 4. sæti með 15 stig, fjórum stigum frá toppnum, á meðan KV er í 8. sæti með 9 stig og hefur nú tapað þremur leikjum í röð.

Ýmir vann á meðan 3-2 sigur á Árbæ. Steinn Logi Gunnarsson og Breki Ottósson komu Ými í 2-0 á fyrsta hálftímanum en Eyþór Ólafsson minnkaði muninn áður en flautað var til hálfleiks.

Björn Ingi Sigurðsson skoraði mikilvægt mark fyrir Ými þegar tæpur stundarfjórðungur var eftir. Tveimur mínútum síðar fékk Agon Aron Morina sitt annað gula spjald og þar með rautt í liði Árbæinga.

Nokkrum mínútum síðar gerði Stefán Bogi Guðjónsson lokakaflann spennandi þegar hann minnkaði muninn í 3-2 með marki úr vítaspyrnu.

Lengra komust tíu leikmenn Árbæinga ekki og lokatölur urðu 3-2. Ýmir er í 6. sæti með 11 stig og hefur unnið tvo leiki í röð, á meðan Árbær er í neðsta sæti með 4 stig og hefur tapað fjórum leikjum í röð.

KV 1 - 5 KH
0-1 Sigfús Kjalar Árnason ('16 )
0-2 Hafþór Bjarki Guðmundsson ('33 )
0-3 Jón Tryggvi Arason ('49 , sjálfsmark)
0-4 Viktor Þór Lárusson ('51 )
1-4 Tristan Alex Tryggvason ('60 )
1-5 Kristófer André Kjeld Cardoso ('83 )

Ýmir 3 - 2 Árbær
1-0 Steinn Logi Gunnarsson ('12 )
2-0 Breki Ottósson ('31 )
2-1 Eyþór Ólafsson ('45 )
3-1 Björn Ingi Sigurðsson ('77 )
3-2 Stefán Bogi Guðjónsson ('87, víti )
Rautt spjald: Agon Aron Morina ('79, Árbær)
Ýmir vann Árbæ

Ýmir vann Árbæ

Canon

Mynd: Helgi Þór Gunnarsson

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víðir11+1425
2Tindastóll11+922
3KH11+1621
4Reynir S.11+720
5KV11-318
6KF11+116
7Höttur11+114
8Augnablik11-114
9Ýmir11-412
1011-1210
11Sindri11-148
12Árbær11-145
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.