Fotbolti.net
16.06.26 - 09:34
Elvar Geir Magnússon

Bielsa um sérstaka myndatöku: Ég er ekki fyrirsæta

Bielsa bindur ekki bagga sína sömu hnútum og samferðamennirnir.

Bielsa bindur ekki bagga sína sömu hnútum og samferðamennirnir.

Canon

Mynd: EPA

Athygli hefur vakið að Marcelo Bielsa, hinn einstaki og afar litríki landsliðsþjálfari Úrúgvæ, horfir niður en ekki í myndavélina í öllum opinberum myndatökum fyrir heimsmeistaramótið.

Bielsa, sem er þekktur sem mikill lærifaðir, er mjög sérstakur. Hann er kallaður 'El Loco' (eða sá brjálaði). Hann á ekki marga titla á ferilskrá sinni en hefur haft mikil áhrif á nokkra af bestu þjálfurum heims.

Hann er ekki mikið fyrir sviðsljósið en menn velta því fyrir sér af hverju hann horfi niður í myndatökum í kringum mótið? Kenningar eru um að það sé til að mótmæla framkvæmdinni og þeim pólitísku deilum sem hafa verið ráðandi í umræðunni.

Eftir 1-1 jafnteflið gegn Sádi-Arabíu í gær var hann lítið hrifinn af því þegar fjölmiðlamenn spurðu hann út í athæfið.

„Maður þarf ekki að útskýra allt sem maður gerir. Það er ekkert að því að horfa í augun á fólki eða horfa niður. Svona var myndin tekin. Ég er ekki fyrirsæta," segir Bielsa.

Úrúgvæ er þriðja landsliðið sem Bielsa stýrir á heimsmeistaramóti. Hann hefur áður stýrt þjóð sinni Argentínu og einnig Síle. Margir lesendur þekkja hann samt kannski helst sem fyrrum stjóra Leeds United.
HM: Markvörður Sádi-Arabíu stal senunni
TENGT EFNI

HM: Markvörður Sádi-Arabíu stal senunni



Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.