Fotbolti.net
16.06.26 - 10:17
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Summerville til Man Utd?

Summerville til Man Utd?
Canon

Mynd: EPA

Manchester United er að skoða að fá inn kantmann í sumar og segir David Ornstein hjá The Athletic að Crysencio Summerville sé ofarlega á blaði hjá United.

Summerville er hollenskur landsliðsmaður sem er á mála hjá West Ham.

Hann skoraði annað mark Hollands í leiknum gegn Japan á sunnudag.
Summerville er 24 ára og er talinn kosta um 50 milljónir punda. Hann á þrjú ár eftir af samningi sínum við Hamrana.

Man Utd gæti þó þurft að bíða eftir því að Marcus Rashford verði seldur frá félaginu áður en hægt verður að fá inn nýjan kantmann.

Að fá inn miðjumann er í forgangi hjá Man Utd og er félagið sterklega orðað við Mateus Fernandes sem er einmitt liðsfélagi Summerville hjá West Ham.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.