Óviljaverk hjá VAR-dómaranum - „Endurspeglar ekki hver ég er“

Atvikið umrædda og táknið sem Evans sýndi

Mynd: Af netinu

Shaun Evans, sem sinnti VAR-dómgæslu á leik Þýskalands og Curacao, hefur verið hreinsaður af FIFA eftir að látbragð var rannsakað rétt fyrir leikinn.
Fyrir leikinn var sýnd bein útsending úr VAR-herberginu og þar gerði Evans tákn með fingrunum sem má túlka sem „OK“-tákn.
Táknið getur haft tvær gjörólíkar merkingar. Önnur er saklaus, en hin hefur verið tengd við hvíta yfirburðahyggju. Saklausa útgáfan er hluti af gríni þar sem sá sem lítur niður á táknið á von á léttu höggi í öxlina.
FIFA rannsakaði málið en komst að þeirri niðurstöðu að Evans hefði ekki brotið aga- eða siðareglur sambandsins.
„Umfjöllunin eftir þetta atvik endurspeglar alls ekki þá manneskju sem ég hef að geyma. Auðvitað skil ég hvernig bendingin hefur verið túlkuð og ég sé eftir því. Ég vil þó vera mjög skýr og segja afdráttarlaust að ég gerði ekki meðvitað eða viljandi það handatákn sem vísað hefur verið til,“ sagði Evans.
Evans mun halda áfram störfum á mótinu.

Australian Shaun Evans just pulled the move of all moves from the VAR room at the World Cup pic.twitter.com/0HK0dWrE11
— Matt Vandenberg (@M1D3V) June 15, 2026
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!