Cole Campbell á leið til Celtic?

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Bandaríski-íslenski leikmaðurinn Cole Campbell gæti verið á leið til Skotlandsmeistara Celtic en þetta herma heimildir Sky í Þýskalandi.
Cole er tvítugur vængmaður sem lék með FH og Breiðabliki áður en hann gekk til liðs við Borussia Dortmund sumarið 2022.
Hann fékk sex leiki með aðalliði Dortmund tímabilið 2024-2025 en var lánaður til Hoffenheim fyrir síðasta tímabil. Þar náði hann sér ekki á strik og lék aðeins fimm leiki.
Hoffenheim var með kauprétt á leikmanninum en ákvað að nýta hann ekki.
Cole er því kominn aftur til Dortmund, en útlit er fyrir að hann staldri ekki lengi við þar. Sky greinir frá því að Celtic sé í viðræðum við Dortmund um leikmanninn, sem er sagður áhugasamur um að ganga til liðs við skoska félagið.
Ef allt gengur eftir verður Cole fimmti Íslendingurinn til að semja við Celtic, á eftir Jóhannesi Eðvaldssyni, Theodóri Elmari Bjarnasyni, Kjartani Henry Finnbogasyni og Hólmberti Aron Friðjónssyni.