Fotbolti.net
16.06.26 - 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Í samstarfi við styrktaraðila

HM í dag - Heimsmeistararnir mæta til leiks

Heimsmeistararnir spila við Alsír

Heimsmeistararnir spila við Alsír

Canon

Mynd: EPA

Heimsmeistarar Argentínu spila sinn fyrsta leik á HM í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó í nótt.
Dagskráin hefst klukkan 19:00 í kvöld er Frakkland spilar við Senegal í I-riðli.

Frakkar eru taldi afar sigurstranglegir eins og alltaf á meðan Senegal er ein allra sterkasta Afríkuþjóðin. Þeir unnu Afríkumótið fyrr á þessu ári, en voru að vísu sviptir titlinum eftir að hafa gengið af velli í úrslitaleiknum gegn Marokkó.

Klukkan 22:00 eigast Írak og Noregur við í sama riðli. Norðmenn gætu verið spútniklið mótsins, með leikmenn á borð við Erling Braut Haaland, Martin Ödegaard, Antonio Nusa og Alexander Sorloth í sínum röðum.

J-riðill hefst klukkan 01:00 er heimsmeistarar Argentínu mæta Alsír áður en Austurríki spilar við Jórdaníu þremur tímum síðar.

Leikir dagsins:

I-riðill:
19:00 Frakkland - Senegal
22:00 Írak - Noregur

J-riðill:
01:00 Argentína - Alsír
04:00 Austurríki - Jórdanía
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.