HM: Nýsjálendingar komu á óvart

Elijah Just var stórkostlegur hjá Nýsjálendingum

Mynd: Motherwell

Ramin Rezaeian var langbesti leikmaður Írans, með mark og stoðsendingu

Mynd: EPA

Íran 2 - 2 Nýja-Sjáland
0-1 Elijah Just ('7 )
1-1 Ramin Rezaeian ('32 )
1-2 Elijah Just ('54 )
2-2 Mohammad Mohebi ('64 )
0-1 Elijah Just ('7 )
1-1 Ramin Rezaeian ('32 )
1-2 Elijah Just ('54 )
2-2 Mohammad Mohebi ('64 )
Íran og Nýja-Sjáland gerðu 2-2 jafntefli í G-riðli heimsmeistaramótsins á SoFi-leikvanginum í Inglewood í Kaliforníu í nótt. Úrslitin koma verulega á óvart, enda Íran með töluvert sterkara landslið á pappírunum og heilum 65 sætum ofar á heimslista FIFA.
Nýsjálendingar skoruðu í sinni fyrstu sókn í leiknum, nokkuð gegn gangi leiksins.
Markvörðurinn sparkaði boltanum langt fram völlinn á Chris Wood, sem lagði hann með brjóstkassanum fyrir Elijah Just. Just kom boltanum á Sarpreet Singh, sem lyfti honum inn á Wood, sem var kominn á ferðina inn í teiginn. Wood lagði boltann aftur með brjóstkassanum fyrir Just, sem kláraði sóknina með því að setja hann í netið.
Fallegt samspil og stórglæsilegt mark, en heldur óvænt að það hafi verið Nýja-Sjáland sem tók forystuna.
Wood komst í færi nokkrum mínútum síðar en fór illa að ráði sínu. Íran vann sig síðan betur inn í leikinn og Mehdi Taremi átti hörkuskot í stöng eftir skyndisókn.
Í kjölfarið kom vatnspása sem gerði Írönum gott. Þeir komu vel stemmdir til baka eftir hana. Max Crocombe, markvörður Nýsjálendinga, kom sér í mikil vandræði þegar hann gleymdi sér aðeins við að hreinsa frá marki. Íranir náðu boltanum en tókst ekki að jafna fyrir auðu marki.
Íranir héldu áfram að pressa og jöfnunarmarkið kom á 32. mínútu. Það skoraði hægri bakvörðurinn Ramin Rezaeian. Hann hóf sóknina sjálfur þegar hann kom boltanum á samherja fyrir utan teiginn.
Boltinn fór inn á framherjann Shahriyar Moghanlou, sem missti hann frá sér og beint á Rezaeian, sem var kominn inn í teiginn og potaði honum utanfótar framhjá Crocombe í markinu.
Ali Nemati hélt að hann hefði komið Írönum yfir í uppbótartíma fyrri hálfleiks þegar hann stangaði aukaspyrnu Rezaeian í netið, en markið var réttilega dæmt af vegna rangstöðu.
Íran var sterkari aðilinn snemma í síðari hálfleik og með algjör yfirráð á miðsvæðinu, en fékk síðan kalda vatnsgusu í andlitið þegar Just kom Nýja-Sjálandi aftur yfir á 55. mínútu, aftur eftir stórkostlegt samspil.
Just fékk boltann, kom honum inn á Wood, sem „tíaði“ boltann upp fyrir hann, áður en Just lyfti honum yfir markvörðinn og í netið. Mögnuð frammistaða hjá þeim tveimur og sóknarspilið ótrúlegt. Þetta voru tvö af flottustu mörkum mótsins til þessa.
Níu mínútum síðar svöruðu Íranir. Rezaeian, sem hafði skorað fyrra mark Írans, átti þá stórglæsilega fyrirgjöf frá hægri á Mohammed Mohebi, sem stangaði boltann í stöngina og inn.
Leikurinn fjaraði út eftir jöfnunarmarkið. Þetta átti að vera auðveldasti leikur Írans í riðlakeppninni, en Nýsjálendingar sýndu að þeir eru ekki bara mættir til að vera með, heldur ætla sér að skrifa söguna.
Íran þarf nú að ná í úrslit gegn Egyptalandi og Belgíu, sterkustu þjóðunum í riðlinum. Meiri pressa á þeim heldur en Nýja-Sjálandi, sem er að spila á HM í aðeins þriðja sinn í sögunni á meðan Íran er á sínu sjöunda móti.
Íran: Beirenvand (M), Rezaeian, Khalilzadeh, Nemati, Mohammadi, Mohebi, Ghoddos (Hajsafi '65), Ezatolahi, Yousefi (Ghaedi '46), Moghanlou (Alipour '53), Taremi (Hosseinzadeh '80).
Nýja-Sjáland: Crocombe (M), Payne (Elliot '78), Surman, Boxall, Cacace (Old '68), Bell, Stamenic (Bindon '90), McCowatt (Thomas '68), Singh (Randall '90), Just, Wood.

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!