Fotbolti.net
17.01.21 - 17:28
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Flautaði til hálfleiks þegar Mane var að sleppa í gegn

Paul Tierney dæmir leikinn.

Paul Tierney dæmir leikinn.

Canon

Mynd: Getty Images

Það er kominn hálfleikur í stórleik Liverpool og Manchester United á Anfield.

Liverpool hefur verið mikið meira með boltann og verið heilt yfir mikið sterkari aðilinn.
Það átti sér stað athyglisvert atvik undir lok fyrri hálfleiks, þegar Paul Tierney flautaði til hálfleiks. Hann flautaði nefnilega akkúrat þegar Thiago - sem hefur verið frábær í fyrri hálfleiknum - átti mjög góða sendingu inn fyrir vörn United.

Sadio Mane elti boltann og var sloppinn í gegn. Dómarinn flautaði akkúrat þegar Thiago tók sendinguna en það voru 45:54 á klukkunni. Einni mínútu var bætt við.

Stuðningsmenn Liverpool voru mjög ósáttir við þetta eins og sjá má hér að neðan.





Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.