fös 17. mars 2023 18:36
Brynjar Ingi Erluson
Walker sleppur við kæru
Mynd: EPA
Kyle Walker, varnarmaður Manchester City, verður ekki kærður fyrir að hafa berað sig fyrir fólki á bar á Wimslow-svæðinu.

Enska blaðið The Sun birti myndband úr öryggismyndavélum þar sem Walker beraði sig fyrir framan vini og gesti staðarins.

Walker hafði verið að skemmta sér þar sem leikmenn Manchester City fengu frídag en lögreglan á Cheshire-svæðinu hóf rannsókn á málinu eftir að myndbandið fór í dreifingu.

Enski landsliðsmaðurinn gaf sig fram og fór í yfirheyrslu hjá lögreglu áður en honum var sleppt. Rannsókninni er lokið en Walker verður ekki kærður og er málinu nú lokið.

Manchester City refsaði ekki Walker fyrir atvikið en hann var að vísu ekki í byrjunarliði liðsins í tveimur leikjum eftir það, gegn Crystal Palace og RB Leipzig.
Athugasemdir
banner
banner
banner