Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mán 17. maí 2021 18:18
Hafliði Breiðfjörð
Byrjunarlið ÍA og Stjörnunnar: Dino Hodzic og Morten Beck byrja
Dino Hodzic spilar sinn fyrsta leik í marki ÍA í kvöld.
Dino Hodzic spilar sinn fyrsta leik í marki ÍA í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Morten Beck byrjar hjá Skagamönnum.
Morten Beck byrjar hjá Skagamönnum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍA tekur á móti Stjörnunni í botnbaráttuslag Pepsi Max-deildar karla í dag en leikurinn er liður í 4. umferð mótsins. Byrjunarliðin eru klár og þau má sjá hér að neðan.

Smelltu hér fyrir beina textalýsingu

Það er ljóst að skörð eru hoggin í lið ÍA fyrir leikinn því þeir Árni Snær Ólafsson markvörður og Sindri Snær Magnússon miðjumaður enduðu báðir á slysadeild eftir síðasta leik gegn FH.

Árni Snær er með slitna hásin og spilar ekki meira á tímabilinu en Sindri Snær braut rifbein og verður frá næstu vikur. Dino Hodzic er í marki ÍA í kvöld en það verður hans fyrsti leikur í Pepsi Max-deildinni. Morten Beck Anderson kom til ÍA frá FH á láni á lokadegi gluggans og hann kemur inn í byrjunarliðið.

Frá síðasta leik gegn FH gerir Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari ÍA, alls þrjár breytingar því Aron Kristófer Lárusson kemur einnig inn í byrjunarliðið.

Stjarnan gerir eina breytingu frá tapinu gegn Víkingi á heimavelli í síðustu umferð. Óli Valur Ómarsson byrjar ekki og inn í hans stað kemur Elís Rafn Björnsson.

Byrjunarlið ÍA:
31. Dino Hodzic (m)
2. Þórður Þorsteinn Þórðarson
3. Óttar Bjarni Guðmundsson (f)
4. Aron Kristófer Lárusson
9. Viktor Jónsson
10. Steinar Þorsteinsson
16. Brynjar Snær Pálsson
17. Gísli Laxdal Unnarsson
19. Ísak Snær Þorvaldsson
21. Morten Beck Guldsmed
44. Alex Davey

Byrjunarlið Stjörnunnar:
1. Haraldur Björnsson (m)
2. Brynjar Gauti Guðjónsson
7. Einar Karl Ingvarsson
9. Daníel Laxdal (f)
10. Hilmar Árni Halldórsson
11. Þorsteinn Már Ragnarsson
12. Heiðar Ægisson
20. Eyjólfur Héðinsson
21. Elís Rafn Björnsson
22. Emil Atlason
32. Tristan Freyr Ingólfsson

Leikir kvöldsins:
18:30 Keflavík - KA
19:15 ÍA - Stjarnan
19:15 KR - Valur
19:15 HK - FH
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner