Michael Olise, Arne Slot, Julian Alvarez, Rafael Leao, Yan Diomande og fleiri góði koma til sögu í slúðrinu
Breki Þór: Gott í bankann
Elfar Árni: Það þýðir ekkert að fara að vorkenna sér
Badu: Við sýndum í dag að við erum með góðan hóp
Gunnar Már: Við munum ekki geta hvílt leikmenn
Viðar Örn: Ég hlakka mikið til að spila með honum í næstu leikjum
Óli Flóvents: Þetta mál er að baki
Venni: Þurfum að höndla það betur en síðast
Heimir Guðjóns: Þurfum að finna lausnir
Siggi Lár: Gaman að vera í Laugardalnum
Horfðu á Besta spjallið - Staða mála skoðuð í landsleikjahlénu
Pablo Punyed sáttur: Vona að ég sjálfur geti spilað minna og minna í sumar
Gaui Lýðs um uppganginn á Ásvöllum: Setjum stefnuna á að komast í efstu deild
Nemanja Pjevic: Þegar maður bíður eftir strætó koma þeir allt í einu þrír í einu
Hrafn Guðmunds: Ég þarf að halda þessu áfram
Davíð Smári: Höfum verið með óþægilega líkamstjáningu
Svekktur Nenad: Tek þetta á mig
Magnús Már súr: Það var samt ekki það sem fór með okkur í dag
Gunnari Heiðari fannst ekkert eðlilega gaman að horfa á HK liðið
Glódís: Þetta eru hræðilegar reglur
Stórt fyrir Söndru Maríu - „Hún elskar að vera hérna"
   sun 17. maí 2026 19:17
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Samkomulag hjá Skagamönnum - „Orðnir ansi skeggjaðir"
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

„Ástæðan fyrir því að maður er í þessum fótbolta er þessi sigurtilfinning sem maður fær eftir sigurleiki," sagði Lárus Orri Sigurðsson, þjálfari ÍA, eftir sigur liðsins á Þór í dag.


Lestu um leikinn: Þór 1 -  2 ÍA

„Við gerðum okkur óþraflega erfitt fyrir. Vorum miklu betri aðilinn í fyrri hálfleik, hefðum átt að vera með meira en eins marks forskot. Komum út í seinni háflleikinn og þeir stíga aðeins á okkur en við stöndum það af okkur. Um miðjan seinni hálfleikinn vorum við mun sterkari aðilinn."

Aron Birkir Stefánsson varði vítaspyrnu frá Viktori Jónssyni eftir klukkutíma leik og Þórsarar fengu góð tækifæri til að jafna metin í kjölfarið.

„Þetta voru erfiðar síðustu fimmtán mínútur. Ég held að það hafi verið mjög gott fyrir liðið að við skildum hafa staðið þetta af okkur. Það sem af er þessu tímabili hefur gengið vel hjá okkur þó stigasöfnunin hafi ekki verið góð. Það hefur einn leikur, Keflavíkurleikurinn, sem hefur ekki verið góður en restin hafa verið fínir en stigasöfnunin ekki komið. Það var mjög sætt að landa þessum þremur stigum," sagði Lárus Orri.

Menn í þjálfarateymi Skagamanna eru orðnir ansi skeggjaðir og það er saga á bakvið það.

„Við tókum okkur saman upp á skrifstofu og skrifuðum undir samning okkar á milli að allir í þjálfarateyminu og flestir upp á skrifstofu að raka ekki skeggið okkar fyrr en við förum út úr bikarnum. Ef þú lítur yfir bekkinn hjá okkur eru menn orðnir ansi skeggjaðir og vonandi verður það eitthvað fram í september," sagði Lárus Orri léttur.


Slapp
banner