Fotbolti.net
17.06.26 - 11:21
Brynjar Ingi Erluson

Ljóst hverjum Vestramenn mæta ef þeir framkvæma kraftaverk

Daniel Osafo-Badu.

Daniel Osafo-Badu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Vestri fékk að vita mögulegan andstæðing sinn í 2. umferð í forkeppni Evrópudeildarinnar í dag.

Vestri komst í forkeppni Evrópudeildarinnar með því að vinna bikarmeistaratitilinn á síðasta ári, en þetta verður ansi sérstakt sumar hjá liðinu sem féll síðan úr Bestu deildinni.

Þetta verður í fyrsta sinn síðan 2012 þar sem Lengjudeildarlið spilar í Evrópu, en Þór gerði það eftir að hafa komist í úrslitaleik bikarsins árið 2011.
Vestra bíður hrikalega erfitt verkefni í Aserbaísjan
TENGT EFNI

Vestra bíður hrikalega erfitt verkefni í Aserbaísjan

Vestri spilar við Qarabag frá Aserbaídsjan í fyrstu umferðinni og þarf að framkvæma kraftaverk til að komast áfram, en takist þeim að vinna það einvígi mun liðið mæta annað hvort CSKA Sofia frá Búlgaríu eða Derry City frá Írlandi.

CSKA hefur unnið búlgörsku deildina oftast í sögunni eða 31 sinni, en ekki tekið að gera það síðan 2008. Þeir unnu bikarkeppnina á nýafstöðnu tímabili. Derry City, sem hefur unnið írsku deildina einu sinni, hafnaði í öðru sæti á síðustu leiktíð og komst þar með í Evrópukeppni.

Leikirnir eru spilaðir 23. júlí og 30. júlí.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.