Fotbolti.net
17.07.16 - 23:05
Ármann Örn Guðbjörnsson

Rúnar Páll: Hefðum allir verið pirraðir á leiðinni heim með eitt stig

Auglýsing
Rúnar fer sáttur heim frá Ólafsvík

Rúnar fer sáttur heim frá Ólafsvík

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Stjarnan vann góðan sigur í Ólafsvík og með því lyftu þeir sér upp í 2. sæti deildarinnar. Þeir sitja nú tveimur stigum frá FH-ingum og eru því komnir í góða stöðu.
Stjörnumenn eru fyrsta liðið til að koma til Ólafsvíkur og taka 3 stig aftur heim síðan í Ágúst árið 2014 eins og svo oft hefur verið sagt áður.
\"Að skora þrjú mörk hér er virkilega sterkt. Sérstaklega þegar Víkingarnir eru mjög sterkt lið\"

Víkingar jöfnuðu tvisvar í leiknum en Garðbæjingarnir hættu aldrei og komust þrisvar sinnum yfir í leiknum og enduðu á því að fá 3 stig
\"Mikill klaufaskapur að fá þetta jöfnunarmark í annað skipti en mjög sterkt hjá okkur að koma okkur strax aftur í forystuna. Hefðum allir verið virkilega svekktir allir hefðum við bara fengið eitt stig.
Við erum alltaf skíthræddir við þá, þeir eru mjög góðir í að breika hratt og þurftum við alltaf að vera varkárir\"

Rúnar sér ekki fram á að bæta neitt við sig í glugganum þrátt fyrir að hann sé opinn. Hann er með stóran og sterkan hóp að hans sögn og sér ekki fram á að þurfa breytingar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.