Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   sun 17. júlí 2022 09:21
Hafliði Breiðfjörð
Funheitur Óttar Magnús skoraði tvö í nótt
Mynd: Oakland Roots

Óttar Magnús Karlsson hefur heldur betur verið iðinn við kolann í Bandaríkjunum upp á síðkastið og skoraði tvö mörk fyrir Oakland Roots í 4 - 0 sigri á El Paso Locomotive í nótt.


El Paso hafði fyrir leikinn farið í gegnum 10 leiki án þess að tapa leik en Óttar Magnús stöðvaði þá.

Með mörkunum tveimur í nótt er Óttar Magnús búinn að skora 15 mörk fyrir Oakland Roots á tímabilinu.

Hann er markahæstur í bandarísku b-deildinni.


Athugasemdir
banner
banner