Fotbolti.net
17.08.22 - 21:46
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Bjarni Jó: Algjör óþarfi að fara leggjast í kampavínsbað

Auglýsing
Bjarni Jó hér lengst til hægri

Bjarni Jó hér lengst til hægri

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Njarðvík fór langleiðina með að tryggja sér sæti í Lengjudeildinni á næstu leiktíð með 2-1 sigri á Haukum í kvöld.

Bjarni Jóhannsson þjálfari Njarðvíkur var að vonum ánægður með sigurinn.

„Þetta var mjög vel gert hjá okkur, Haukarnir eru með mjög sprækt lið. Við brugðumst vel við því mótlæti sem við lentum í í upphafi leiks, brennum af víti og svo fá þeir víti tveimur mínútum seinna og skora," sagði Bjarni.

Bjarni var ekki tilbúinn að fagna sætinu í Lengjudeildinni strax.

„Meðan að lið geta náð okkur þá er algjör óþarfi að vera leggjast í kampavínsbað. Það kemur seinna vonandi," sagði Bjarni og hló.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.