17.08.26 - 18:34
Andri Stefánsson
Byrjunarlið Fram og Stjörnunnar: Darri Bergmann heldur sæti sínu
Árni Snær er á bekknum í kvöld

Darri Bergmann ver mark Stjörnunnar í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Árni Snær er á bekknum í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ægir Jarl kemur aftur inn í liðið eftir að hafa tekið út leikbann gegn KR.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Darri Bergmann ver mark Stjörnunnar í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson
Fram tekur á móti Stjörnunni klukkan 19:15 í 19. umferð Bestu deildar karla. Spilað verður á Lambhagavellinum, heimavelli Fram.
Fyrri viðureign liðanna í sumar endaði með 0-1 útisigri Fram. Róbert Hauksson skoraði sigurmarkið eftir fyrirgjöf frá Frey Sigurðssyni.
Fram kemur inn í leikinn eftir heimaleik gegn KR. Þar þurftu Framarar að þola þungt 5-2 gegn KR. Með sigri í kvöld geta Fram jafnað KR að stigum.

Lestu um leikinn: Fram 1 - 0 Stjarnan
Stjarnan kemur inn í leikinn eftir sterkan 1-0 sigur á Keflavík. Leikurinn fór fram á Samsungvellinum og Bjarki Hauksson skoraði sigurmarkið í leiknum.
Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, gerir þrjár breytingar á liði sínu eftir tapið gegn KR. Bjarni Páll Linnet Runólfsson, Jakob Byström og Már Ægisson taka sér sæti á bekknum. Róbert Hauksson, Sigurjón Rúnarsson og Ægir Jarl Jónasson koma inn í liðið. Sigurjón og Ægir voru í leikbanni gegn KR.
Jón Þór Hauksson, þjálfari Stjörnunnar, gerir eina breytingu á liði sínu eftir sigurinn gegn Keflavík. Birnir Snær Ingason tekur sér sæti á bekknum. Í staðinn fyrir hann kemur Ibrahim Turay. Árni Snær er á bekknum eftir að hafa fengið leyfi vegna brúðkaups í síðasta leik.

Byrjunarlið Fram
- 22. Viktor Freyr Sigurðsson (m)
- 3. Þorri Stefán Þorbjörnsson
- 5. Kyle Douglas Mc Lagan
- 8. Haraldur Einar Ásgrímsson
- 9. Róbert Hauksson
- 10. Frederico Bello Saraiva
- 18. Ægir Jarl Jónasson
- 19. Kennie Knak Chopart (f)
- 25. Freyr Sigurðsson
- 26. Sigurjón Rúnarsson
- 29. Vuk Oskar Dimitrijevic
Byrjunarlið Stjarnan
- 1. Darri Bergmann Gylfason (m)
- 3. Gustav Kjeldsen
- 7. Örvar Eggertsson
- 8. Jóhann Árni Gunnarsson
- 14. Bjarki Hauksson
- 18. Guðmundur Baldvin Nökkvason
- 19. Ari Leifsson
- 21. Ibrahim Turay
- 22. Emil Atlason (f)
- 23. Benedikt V. Warén
- 32. Örvar Logi Örvarsson

Árni Snær er á bekknum í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ægir Jarl kemur aftur inn í liðið eftir að hafa tekið út leikbann gegn KR.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 19 | +44 | 48 |
| 2 | KR | 19 | +25 | 40 |
| 3 | Fram | 18 | +11 | 37 |
| 4 | Breiðablik | 19 | +6 | 30 |
| 5 | ÍA | 19 | -4 | 25 |
| 6 | Keflavík | 19 | -4 | 25 |
| 7 | Valur | 18 | -5 | 22 |
| 8 | Stjarnan | 18 | -10 | 21 |
| 9 | ÍBV | 19 | -11 | 17 |
| 10 | FH | 19 | -12 | 17 |
| 11 | KA | 18 | -12 | 15 |
| 12 | Þór | 19 | -28 | 15 |