Byrjunarlið Vals og KA: Valur með tvo framherja en KA engan miðvörð
2012 módel á bekknum hjá Val

Birgir ber fyrirliðabandið hjá KA.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Patrick Pedersen kemur aftur í lið Vals.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hans Viktor tekur út leikbann.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Bjarni Mark er ekki í hópnum í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Djuric var orðaður við Val undir lok félagaskiptagluggans.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Birgir ber fyrirliðabandið hjá KA.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrri leikur liðanna í sumar endaði meði 0-1 útisigri Vals og var það Albin Skoglund sem skoraði sigurmarkið.
Valur kemur inn í leikinn eftir útileik gegn Nordsjælland í forkeppni Sambandsdeildarinnar. Sá leikur endaði með 5-0 tapi Vals í Danmörku og endaði einvígið með sjö marka sigri danska liðsins. Á milli Evrópuleikjanna sigraði Valur Breiðablik og var það fyrsti deildarsigur liðsins undir stjórn Chris Brazell.

Ungur Valsari á reynslu hjá Nordsjælland
Brazell, þjálfari Vals, gerir tvær breytingar frá leiknum gegn Nordsjælland. Framherjarnir Dagur Orri Garðarsson og Patrick Pedersen snúa aftur í liðið og þeir Jakob Franz Pálsson og Hörður Ingi Gunnarsson taka sér sæti á bekknum. Bjarni Mark Antonsson er ekki í leikmannahópi Vals í dag en Guðmundur Brynjar Wehmeier, sem fæddur er 2012, er á bekknum.
Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, gerir þrjár breytingar frá leiknum gegn FH. Hans Viktor Guðmundsson, fyrirliði KA, tekur út leikbann í dag og Birgir Baldvinsson ber því fyrirliðabandið í dag. Kári Gautason, Jeppe Pedersen og Mikael Breki Þórðarson koma inn. Valdimar Logi Sævarsson og Jakob Héðinn Róbertsson taka sér sæti á bekknum. Það vekur athygli að enginn náttúrulegur miðvörður er í liði KA í dag en líkur eru á því að þeir Guðjón Ernir og Birgir verði í hjarta varnarinnar og mögulega Andre Römer með þeim. Það kemur allt í ljós þegar flautað verður til leiks. Miðvörðurinn Markús Máni Pétursson er á bekknum ásamt Danijel Dejan Djuric sem byrjar þriðja leikinn í röð á bekknum.
Byrjunarlið Valur
- 1. Frederik August Albrecht Schram (m)
- 4. Markus Lund Nakkim
- 7. Samúel Kári Friðjónsson
- 9. Patrick Pedersen
- 10. Jónatan Ingi Jónsson
- 12. Tryggvi Hrafn Haraldsson
- 15. Hólmar Örn Eyjólfsson (f)
- 17. Lúkas Logi Heimisson
- 19. Dagur Orri Garðarsson
- 22. Birkir Heimisson
- 24. Myles A Veldman
Byrjunarlið KA
- 1. Ívar Arnbro Þórhallsson (m)
- 2. Birgir Baldvinsson (f)
- 3. Kári Gautason
- 6. André Rømer
- 7. Adam Ægir Pálsson
- 8. Jeppe Pedersen
- 10. Hallgrímur Mar Steingrímsson
- 17. Samuel Karl Kroon
- 21. Mikael Breki Þórðarson
- 29. Jakob Snær Árnason
- 30. Guðjón Ernir Hrafnkelsson

Patrick Pedersen kemur aftur í lið Vals.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hans Viktor tekur út leikbann.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Bjarni Mark er ekki í hópnum í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Djuric var orðaður við Val undir lok félagaskiptagluggans.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 19 | +44 | 48 |
| 2 | KR | 19 | +25 | 40 |
| 3 | Fram | 18 | +11 | 37 |
| 4 | Breiðablik | 19 | +6 | 30 |
| 5 | ÍA | 19 | -4 | 25 |
| 6 | Keflavík | 19 | -4 | 25 |
| 7 | Valur | 18 | -5 | 22 |
| 8 | Stjarnan | 18 | -10 | 21 |
| 9 | ÍBV | 19 | -11 | 17 |
| 10 | FH | 19 | -12 | 17 |
| 11 | KA | 18 | -12 | 15 |
| 12 | Þór | 19 | -28 | 15 |

