17.08.26 - 09:47
Elvar Geir Magnússon
City leggur áherslu á að landa Bouaddi í þessari viku

Ayyoub Bouaddi.

Mynd: EPA

Ayyoub Bouaddi.

Mynd: EPA
Manchester City er að reyna að kaupa marokkóska landsliðsmanninn Ayyoub Bouaddi frá Lille en hann er 18 ára gamall. Táningurinn var frábær á HM en hann er varnartengiliður líkt og Rodri, sem er á leið til Barcelona.
Breska ríkisútvarpið segir að viðræður City um Bouaddi séu komnar vel á veg en Lille verðleggur hann á um 85 milljónir punda. Félagið leggi áherslu á að reyna að landa honum í þessari viku.
Breska ríkisútvarpið segir að viðræður City um Bouaddi séu komnar vel á veg en Lille verðleggur hann á um 85 milljónir punda. Félagið leggi áherslu á að reyna að landa honum í þessari viku.

TENGT EFNI
Stærðfræðineminn sem stórliðin girnast
Bouaddi hefur leikið 88 leiki fyrir Lille síðan hann spilaði sinn fyrsta leik í október 2023, þremur dögum eftir 16 ára afmæli sitt. Hann hjálpaði liðinu að enda í þriðja sæti í frönsku deildinni á síðasta tímabili.
Það eru að verða breytingar á miðsvæði City. Rodri verður seldur á 65 milljónir punda. Auk Bouaddi hefur City sýnt Enzo Fernandez hjá Chelsea mikinn áhuga. Þá var Elliot Anderson keyptur frá Nottingham Forest í sumar.