17.08.26 - 14:48
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
„Dóri lifði eftir því sem við trúum á"

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Halldór Snær Georgsson, markvörður KR, hafði í nægu að snúast gegn Breiðabliki í gær. Blikar áttu 23 marktilraunir að marki KR og tíu rötuðu á markið.
Ein af vörslum Halldórs var gegn Höskuldi Gunnlaugssyni af vítapunktinum en Halldór hafði gerst brotlegur gegn Þorleifi Úlfarssyni og vítaspyrna dæmd. Halldór lét það ekki á sig fá og varði vítið.
Hann hefði líklegast átt að gera betur í aukaspyrnumarki Kristófers Inga Kristinssonar sem náði að skjóta boltanum framhjá veggnum en samt koma honum í hornið. Þar fyrir utan átti Halldór mjög góðan leik í markinu í leiknum sem endaði með 3-3 jafntefli.

Lestu um leikinn: KR 3 - 3 Breiðablik
„Ég þarf að sjá markið aftur, hvort ég hafi átt að stilla veggnum upp meira til hægri. Ég þarf að sjá þetta aftur en hefði viljað gera betur," sagði Halldór við Runólf Trausta á Vísi um aukaspyrnumarkið.
Um vítaspyrnuatvikið hafði hann svo þetta að segja: „Ég sá hann koma í gegn og ætlaði að ná boltanum. Hann var klókur og náði boltanum á undan mér, ég fór í hann. Þetta var víti en gott að bjarga sjálfum sér og verja þetta.“
„Mér fannst við eiginlega klaufar, en Dóri varði vel heilt yfir, m.a. frá mér. Það svíður að hafa klúðrað vítinu, hann las þetta helvíti vel hjá mér," sagði Höskuldur, fyrirliði Breiðabliks, við Fótbolta.net eftir leikinn.
Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, ræddi um Halldór í viðtali við Fótbolta.net eftir leikinn.
Þú hlýtur að vera ánægður með karakterinn í honum?
„Engin spurning. Dóri lifði bara eftir því sem við trúum á. Þú ert ekki skilgreindur af mistökunum, heldur hvernig þú stendur upp eftir þau. Við horfum ekki á að Dóri hafi átt að gera þetta eða hitt, eða átt þetta (að gera betur í marki). Hann var mjög flottur í dag," sagði Óskar.

Óskar Hrafn: Aleinir út á rúmsjó ekki með björgunarvesti eða björgunarbát
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 19 | +44 | 48 |
| 2 | KR | 19 | +25 | 40 |
| 3 | Fram | 18 | +11 | 37 |
| 4 | Breiðablik | 19 | +6 | 30 |
| 5 | ÍA | 19 | -4 | 25 |
| 6 | Keflavík | 19 | -4 | 25 |
| 7 | Valur | 18 | -5 | 22 |
| 8 | Stjarnan | 18 | -10 | 21 |
| 9 | ÍBV | 19 | -11 | 17 |
| 10 | FH | 19 | -12 | 17 |
| 11 | KA | 18 | -12 | 15 |
| 12 | Þór | 19 | -28 | 15 |