17.08.26 - 09:06
Elvar Geir Magnússon
Gordon fær lof í Katalóníu

Anthony Gordon fyrir leikinn í gær.

Mynd: EPA

Anthony Gordon fyrir leikinn í gær.

Mynd: EPA
Enski landsliðsmaðurinn Anthony Gordon fær mikið hrós fyrir frammistöðu sína í fyrsta leik sínum með Barcelona en liðið sigraði Basel 5-2 í æfingaleik. Gordon lék fyrri hálfleikinn og var sífellt ógnandi að að skapa fyrir liðsfélaga sína.
Spænska blaðið Sport segir að Gordon, sem lék vinstra megin í sóknarlínu Börsunga, hafi verið mjög áberandi í leiknum og verið besti maður leiksins.
AS segir að Gordon, sem var keyptur frá Newcastle, sé búinn að sannfæra stjórann Hansi Flick um að hann sé klár í að verða byrjunarliðsmaður eftir frammistöðu hans á æfingum í síðustu viku.
Stuðningsmenn Barcelona eru spenntir fyrir leikmanninum eftir frammistöðu hans í gær, segja hann koma með ferska vinda í liðið og koma með meiri ógn í sóknarleikinn.

TENGT EFNI
Yamal og Mbappé á skotskónum
Anthony Gordon vs Basel pic.twitter.com/aJiS3xmWUU
— Hansi’s Barça ???????? (fan) (@Flickxball) August 16, 2026