17.08.26 - 09:00
Ívan Guðjón Baldursson
Pocognoli tekinn við Skotlandi (Staðfest)

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Belginn ungi Sébastien Pocognoli er tekinn við þjálfun á skoska landsliðinu. Þetta staðfesti skoska fótboltasambandið í gær.

TENGT EFNI
39 ára Belgi nálægt því að taka við Skotlandi
Pocognoli er aðeins 39 ára gamall en gerði flotta hluti við stjórnvölinn hjá Royale Union Saint-Gilloise í Belgíu og AS Monaco í franska boltanum.
Hann lék 13 landsleiki fyrir Belgíu á ferli sínum sem atvinnumaður í fótbolta og reynir nú fyrir sér í fyrsta sinn sem landsliðsþjálfari.
Pocognoli tekur við af Steve Clarke sem sagði landsliðsþjálfarastarfinu lausu eftir heimsmeistaramótið í sumar og er hann aðeins annar erlendi landsliðsþjálfarinn í sögu Skotlands.
„Þegar ég heyrði fyrst af áhuganum varð ég samstundis spenntur fyrir tækifærinu. Skoskir stuðningsmenn eru þekktir fyrir ástríðu sína. Ég mun gera allt sem ég get til að byggja upp lið sem gerir þá stolta," segir Pocognoli.

Welcome, Sébastien ??
— Scotland National Team (@ScotlandNT) August 16, 2026
Sébastien Pocognoli is your new Scotland Men’s National Team Head Coach. pic.twitter.com/J1t0pJhdUt