17.08.26 - 15:01
Kári Snorrason
Tæplega 2900 manns á Meistaravöllum í gær - Það mesta í sumar

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
2887 áhorfendur lögðu leið sína á Meistaravelli í gær til þess að fylgjast með viðureign KR og Breiðabliks. Áhorfendafjöldinn er sá mesti á leik í Bestu deildinni í sumar.
Blíðskapaveður var í Vesturbænum í gær og var leikurinn sjálfur engin vonbrigði, lokatölur 3-3.
Blíðskapaveður var í Vesturbænum í gær og var leikurinn sjálfur engin vonbrigði, lokatölur 3-3.
Lestu um leikinn: KR 3 - 3 Breiðablik
Eftir því sem Fótbolti.net kemst næst er viðureign Víkings og Breiðabliks í fyrstu umferð næst mest sótti leikurinn en þar var uppselt og sóttu 2200 manns leikinn.
Þá var best sótti leikur síðasta tímabils sömuleiðis viðureign KR og Breiðabliks á Meistaravöllum. Leikurinn fór fram 26. júlí og mættu 3107 áhorfendur.
Leikurinn var sá fyrsti sem KR spilaði á Meistaravöllum það tímabil vegna framkvæmda og lagningu nýs gervigrass.